Almenn umsókn / General application
pwc/global_campus_careers
3 Locations
Posted Sep 11, 2026
- Full-time
Job description
Line of Service Assurance Industry/Sector Not Applicable Specialism Assurance Management Level Associate Job Description & Summary Hefur þú áhuga á að starfa hjá PwC? Hér getur þú skráð almenna umsókn. Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur. PwC á Íslandi er hluti af stærsta alþjóðlega endurskoðunar- og fjármálaráðgjafafyrirtæki heims. Gæði þjónustu okkar hefur fært fyrirtækinu samkeppnisforskot á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Staða okkar byggir fyrst og fremst á afburða hæfileikum og reynslu starfsmanna PwC. Við leggjum því mikið upp úr því að laða til okkar hæfileikaríkt fólk, efla það í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins. Hjá PwC á Íslandi starfa yfir 100 manns, flestir með menntun í viðskiptafræði, bókahaldi og/eða löggiltir endurskoðendur. Einnig starfa hjá fyrirtækinu lögfræðingar á sviði skattamála, hagfræði, tölfræði, verkfræði, sálfræði og svo mætti áfram telja. PwC er með starfsemi á sex stöðum á landinu; Reykjavík, Akureyri, Húsavík, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum. Hjá PwC starfar breiður hópur einstaklinga með margvíslega reynslu og menntun. Fjögur meginsvið PwC eru endurskoðunarsvið, Bókhald og laun, fyrirtækjaráðgjöf og skatta-og lögfræðisvið. Flestir okkar starfsmenn starfa á endurskoðunarsviði . Þar leitum við að einstaklingum sem eru: löggiltir endurskoðendur viðskiptafræðingar af endurskoðunarsviði einstaklingar sem lokið hafa/eru í M.Acc. námi einstaklingar sem hafa reynslu af endurskoðunarverkefnum, vanir bókhaldi og uppgjörum, skattframtalsgerð og tengdum verkefnum. Bókhald og laun sinnir fjölbreyttum bókhaldsverkefnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þar ráðum við inn einstaklinga með reynslu af því að færa inn bókhald. Fyrirtækjaráðgjöfin sækist fyrst og fremst eftir einstaklingum með reynslu og menntun á sviði viðskipta, fjármála, hagfræði og verkfræði. Skatta- og lögfræðisvið sækist fyrst og fremst eftir lögfræðingum sem hafa sérhæft sig í skattarétti eða sækjast eftir slíkri sérhæfingu. Við erum ávallt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að slást í okkar góða hóp. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Áhugasamir vinsamlegast sendið okkur umsókn hér að neðan. Athugaðu að þú þarf að stofna aðgang að ráðningarsíðunni okkur til að geta skráð inn umsókn. Með því að sækja um í gegnum vefsíðuna samþykkir þú að við varðveitum umsókn þína og höfum við samband við þig ef þú kemur til greina í starf hjá okkur. Upplýsingarnar sem fram koma í umsókninni verða aðeins notaðar í tengslum við mats- og ráðningarferli hjá okkur. Farið verður með persónuupplýsingar sem fram koma í umsókninni í samræmi við lög um persónuvernd. Vinsamlegast sendið okkur ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í umsókninni. Sjá Persónuverndarstefnu PwC . Óskir þú eftir að við eyðum umsókn þinni strax að úrvinnslu lokinni vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum netfangið . Education (if blank, degree and/or field of study not specified) Degrees/Field of Study required: Degrees/Field of Study preferred: Certifications (if blank, certifications not specified) Required Skills Optional Skills Desired Languages (If blank, desired languages not specified) Travel Requirements Not Specified Available for Work Visa Sponsorship? No Government Clearance Required? No Job Posting End Date